Beint í leiðarkerfi vefsins.
Fyrirtækið
Það var frábær stemming í 50 ára afmæli Múlakaffis í hádeginu, myndirnar segja allt sem segja þarf.
Nú er tækifærið til að upplifa stemminguna eins og hún var í Múlakaffi fyrir 50 árum síðan. Mánudaginn 14. maí höldum við uppá 50 ára afmæli okkar. Það verður ýmislegt í boði í tilefni dagsins, td. bjóðum við uppá frítt kaffi og afmælistertu með allan daginn. Einnig verða á matseðli dagsins nokkrir af gömlu og góðu réttunum sem allir viðskiptavinir okkar kannast við. Þessir réttir verða seldir á 50 kr. í tilefni af 50 ára afmælinu. Njóttu dagsins með okkur og upplifðu stemminguna eins og hún var í Múlakaffi fyrir 50 árum. Allir gömlu skotheldu réttirnir á einum stað lagaðir af gömlu meisturunum sem mæta á staðinn í sínum fínustu skrautbúningum
Við búum yfir 50 ára reynslu auk þeirrar þekkingar og sérhæfingar sem nútímaleg veisla krefst. Það felur í sér að við mætum öllum tilefnum með réttri tegund af veitingum, búnaði, þjónustu og framsetningu. Skoðaðu úrvalið hérna á síðunni eða hafðu samband í síma 553-7737.