Við tökum hlýlega á móti þér og sjáum til þess að þú snúir aftur saddur og sæll.
Á hverjum degi getur þú valið á milli nokkurra vel útilátinna og gómsætra aðalrétta á góðu verði. Plokkfiskur með rúgbrauði og kartöflum, gellur með hamsatólg og lambalærissneiðar með bérnaise-sósu eru einungis brot af kræsingunum sem þú getur notið í því heimilislega andrúmslofti sem einkennir Múlakaffi.
