Konungar þorrans

Þorrinn 2026

Konungar þorrans

Þjóðleg íslensk matarmenning er okkur í blóð borin, enda höfum við selt þorramat í meira en hálfa öld.

Pantaðu þína þorraveislu í tæka tíð

Þorratrogin sívinsælu eru á sínum stað. Hægt er að panta fyrir sex eða fleiri og við tökum forskot á sæluna og byrjum að afgreiða trogin mánudaginn 12. janúar.

Þegar þú pantar trog getur þú verið viss um að fá smakk og gott betur af öllu því sem þorrinn hefur upp á að bjóða. Súrmaturinn er í öllu sínu veldi og nýmetið svíkur engan.

Þorratrogið

Fyrir sex manns eða fleiri

Í troginu

  • Harðfiskur
  • Hangikjöt
  • Síldarsalöt
  • Rófustappa
  • Ný sviðasulta
  • Sviðakjammi
  • Baunasalat
  • Rúgbrauð, flatbrauð og smjör

Borið fram heitt

  • Saltkjöt
  • Kartöflur
  • Uppstúfur

Afgreiðsla troganna hefst mánudaginn 12. janúar

Múlakaffi Hallarmúla

Við blótum þorrann með hátíðarbrag

Glæsilegt þorrahlaðborð í hádeginu í Hallarmúla, og á bóndadaginn sjálfan er einnig opið um kvöldið.

Bóndadagurinn, hádegi

Föstudagur 23. janúar

Þorrahlaðborð í hádeginu í Hallarmúla.

Bóndadagurinn, kvöld

Föstudagur 23. janúar

Opið um kvöldið í glæsilegt þorrahlaðborð frá kl. 17:00 til 19:30.

Hádegi

Föstudagur 30. janúar

Þorrahlaðborð í hádeginu í Hallarmúla.

Í meira en hálfa öld

Það er ekki að ósekju sem Múlakaffi hefur verið nefnt Konungur þorrans, og við kappkostum að standa undir nafnbótinni.

Nú sem fyrr er allur okkar súrmatur lagaður í Múlakaffi þar sem eingöngu er notast við íslenska mjólkurmysu og hefðbundnar íslenskar aðferðir.

Þorrameistararnir okkar hefja súrvinnsluna snemma á haustin, gefa sér góðan tíma og leggja alúð í framleiðsluna.

Hjónabakkinn sívinsæli

Gjöf til bóndans

Hjónabakkinn sívinsæli

Nýmeti og súrmeti fyrir tvo. Hjónabakkinn er frábær gjöf til bóndans á bóndadaginn sjálfan, hlaðinn öllu því besta úr þorranum.

Panta hjónabakka

Tryggðu þér þorraveisluna

Hringdu í okkur eða sendu línu og við göngum frá pöntuninni. Trogin fara hratt þegar nær dregur þorranum.

Við sérhæfum okkur í ferskum og ljúffengum veitingum fyrir viðburði og fyrirtæki um allt Ísland.

Þjónusta
Hafa Samband
Hallarmúla 1, 108 Reykjavík
553 7737mulakaffi@mulakaffi.is
Mán–Fös: 8:00–17:00
© 2026 Múlakaffi. Öll réttindi áskilin.