Velkomin í Vör
Ný viðmið í veislum og viðburðum

Múlakaffi kynnir með stolti, nýja veislusalinn í Vör við Viðeyjarsund. Um er að ræða stórglæsilegan veislusal sem hentar fullkomlega fyrir sitjandi veislur með allt að 300 til 900 veislugestum. Í standandi veislur rúmar Vör allt að 1500 manns. Auðvelt er að stúka salinn af þannig að hann taki fullkomlega utan um hverja veislustærð.
"Vör er langþráð viðbót við framboðið af veislusölum á höfuðborgarsvæðinu. Veisluþjónusta í sinni breiðustu mynd er okkar "dna" og hlökkum við til að bjóða okkar stóra hópi viðskiptavina uppá nýjan áfangastað fyrir veislur og viðburði af öllum stærðum og gerðum".
Guðríður María Jóhannesdóttir
Framkvæmdastjóri Múlakaffis

Bókaðu þinn viðburði í tæka tíð
Veislusalurinn í Vör opnar haustið 2026 og verður opinn frá október til mars ár hvert. Landsliðskokkar Múlakaffis ásamt þrautreyndu teymi þjóna og veislustarfsfólks munu þar töfra fram veislur af öllum stærðum og gerðum með áherslu á gæði og framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini.


Sjá pdf með frekari upplýsingum
Jólahlaðborð aldarinnar

Múlakaffi og hljómsveitin Bandmenn hafa ákveðið að halda jólahlaðborð aldarinnar í nýja veislusalnum í Vör á aðventunni 2026. Um er að ræða 6 skipti og eru bókanir þegar hafnar. Öllu verður til tjaldað í veitingum, skemmtun og skreytingum og því fullkomin skemmtun fyrir hópa af öllum stærðum og gerðum.