
Veislur og matseðlar
Veisla framundan? Kíktu á úrvalið
Við setjum veisluna saman nákvæmlega eftir þínum óskum. Matseðlarnir okkar eru aðeins dæmi um þær kræsingar sem hafa kitlað ófáa bragðlauka.
Hugsum stórt … en hugum ætíð að því smæsta
Oft er tilefnið svo sérstakt að því hæfir engin hefðbundin umgjörð. En þá komum við til sögunnar og sköpum fyrir þig þá veislu sem hentar þínu einstaka tilefni.
Við útvegum allt sem til þarf og setjum upp fullbúið eldhús, sé þess óskað. Okkar hlutverk er að töfra fram þá veislu sem þú vilt halda. Veislusalurinn getur verið lítill, stór, risastór eða jafnvel heil íþróttahöll.




Smáréttir og fingrafæði
Glæsilegt úrval af fingrafæði og smáréttum sem hentar öllum tilefnum, frá léttum móttökum upp í heilu veislurnar.
Útskriftir
Áfanginn er stór og veislan á að vera eftir því. Fingrafæði og smáréttaborð sem hafa slegið í gegn í ófáum útskriftarveislum.
Brúðkaup
Við sérsníðum brúðkaupsveislur í takt við óskir brúðhjónanna. Sendu okkur fyrirspurn og við bókum fund með fagfólkinu okkar.
Árshátíðir og viðburðir
Þriggja rétta veislur, steikarhlaðborð og forréttaveislur fyrir hópinn þinn, hvort sem hann telur fimmtíu manns eða fimmtán hundruð.
Kaffihlaðborð og erfidrykkjur
Kaffihlaðborð hentar við ýmis tilefni, hvort sem það er afmæli, ferming eða erfidrykkja. Látið okkur vita af næmi og óþoli og við leysum það.

Ferðaþjónusta
Veislur í íslenskri náttúru, á jöklum, í hellum og hvar sem hópurinn þinn er staddur. Verð fer eftir staðsetningu og fyrirkomulagi.
Fermingar
Fingrafæði, hlaðborð og brunch fyrir fermingardaginn, sniðið að fjölskyldunni og fjöldanum.

Ítalskt hlaðborð
Ítölsk veisla að hætti hússins, forréttir, aðalréttir og meðlæti sem deilt er við borðið. Sendu okkur fyrirspurn og við setjum saman tilboð.
Setjum saman þinn seðil
Matseðlarnir eru aðeins dæmi. Segðu okkur af tilefninu og við sérsníðum veisluna að þínum óskum.
Senda fyrirspurn