
Uppi á jökli
Jöklaveislur
Hlaðborðið hlaðið úr snjó, borðbúnaðurinn borinn upp í fönnina.

Ferðaeldhúsið
Ef þangað er fært, þá eldum við þar.
Ógleymanleg og draumkennd upplifun
Veisla í íslenskri náttúru er viðburður sem hrífur öll skynfærin. Við getum látið drauminn um veislu í íslenskri náttúru rætast enda höfum við haldið veislur á fjöllum, ofan í hellum, úti á sjó, á litlum eyjum og úti í skógi svo eitthvað sé nefnt.
Möguleikarnir eru ótakmarkaðir en í öllum tilfellum er um að ræða viðburð sem er ógleymanleg og draumkennd upplifun.
Úr ferðabók eldhússins
Þetta er ekki upptalning heldur sýnishorn. Hver veisla bætir nýjum stað á kortið.

Uppi á jökli
Hlaðborðið hlaðið úr snjó, borðbúnaðurinn borinn upp í fönnina.

Ofan í helli
Dúkað borð og gæruskinn í hellisskútanum.

Inni í skógi
Langborð milli trjánna og gærur á bekkjunum.

Milli fjalla
Hlaðborð í skálanum með Mörkina allan hringinn.

Undir hömrunum
Borðað í hellismunnanum, svartur sandur á alla vegu.

Við flæðarmálið
Veisluborð í fjörunni með hafið sem bakvegg.