Matseðill Sjálands
Yfirkokkur Múlakaffis, listakokkurinn Eyþór Rúnarsson, hefur umsjón með matseðli og áherslum Sjálands. Veisluþjónusta Múlakaffis er rómuð fyrir bragðgæði, magnaða framsetningu og fagmennsku.

Við sjávarsíðuna í Garðabæ
Veislusalur við sjávarsíðuna
Einn rómaðasti veislu- og viðburðastaður landsins, Sjáland í Garðabæ, hefur opnað á ný. Staðurinn stendur við sjávarsíðuna í Garðabæ og útsýnið yfir sjóinn setur einstakan svip á hverja veislu.
Í Sjálandi eru tveir salir, stærri salur fyrir stærri viðburði og minni salur sem hentar vel fyrir minni og meðalstórar veislur. Staðurinn hefur lengi verið vinsæll fyrir brúðkaup, afmælisveislur og árshátíðir.
Yfirkokkur Múlakaffis, listakokkurinn Eyþór Rúnarsson, hefur umsjón með matseðli og áherslum Sjálands. Veisluþjónusta Múlakaffis er rómuð fyrir bragðgæði, magnaða framsetningu og fagmennsku.
Hafðu samband á mulakaffi@mulakaffi.is eða í síma 553 7737 og við finnum dagsetningu og útfærslu sem hentar þínu tilefni.



